Persónuverndarstefna Flísabúðarinnar hf.

Flísabúðin hf. leggur áherslu á að tryggja öryggi og trúnað persónuupplýsinga í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Markmið stefnunnar er að upplýsa viðskiptavini og aðra samstarfsaðila um hvernig fyrirtækið safnar, notar og verndar persónuupplýsingar.

Flísabúðin hf.,680788-2519, er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga. Fyrirspurnir varðandi persónuvernd má senda á bokhald()flis.is

Fyrirtækið vinnur persónuupplýsingar í tengslum við sölu á vörum og þjónustu, reikningagerð, afhendingu vara, þjónustu við viðskiptavini og til að uppfylla lagaskyldur, svo sem vegna bókhalds og skattskila. Upplýsingar sem safnað er eru eingöngu þær sem nauðsynlegar eru vegna viðskipta og samskipta.

Persónuupplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema slíkt sé nauðsynlegt vegna þjónustu, samkvæmt lögum eða með samþykki viðkomandi. Fyrirtækið kann að nýta utanaðkomandi þjónustuaðila, svo sem tölvu- og bókhaldsþjónustu eða flutningsaðila, sem vinna með upplýsingar samkvæmt samningi og lögum.

Flísabúðin gætir þess að persónuupplýsingar séu varðveittar með öruggum hætti og aðeins aðgengilegar þeim starfsmönnum sem þurfa á þeim að halda. Upplýsingar eru ekki geymdar lengur en nauðsynlegt er samkvæmt tilgangi vinnslunnar og lagakröfum.

Einstaklingar eiga rétt á aðgangi að upplýsingum um sig, leiðréttingu þeirra eða eyðingu þegar heimilt er samkvæmt lögum.

Fyrirtækið kann að uppfæra stefnuna þegar breytingar verða á starfsemi eða lögum og birtir þá uppfærða útgáfu á heimasíðu sinni.

Opnunartímar

Mánudag til fimmtudags frá 08:00 til 17:00
Föstudaga frá 08:00 til 16:00
Laugardaga frá 10:00 til 14:00
ViðskiptaskilmálarPersónuverndarstefna

Verið velkomin!

Við erum á Stórhöfða 21, 
110 Reykjavík, við Gullinbrú.


cart
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram