Um vöruna

Aventino Vein er hágæða postulínsflís sem endurskapar klassískt útlit travertínsteins með vein-cut skurði, þar sem náttúrulegar láréttar æðar steinsins njóta sín til fulls. Hlýir beige- og sandlitir ásamt einkennandi línulegri áferð skapa glæsilegt og tímalaust yfirbragð. Flísin sameinar fegurð ítalsks travertíns og alla kosti postulínsflísa – mikla endingu, slitstyrk og einfalt viðhald.

Hönnun

Flísin einkennist af mjúkum beige- og sandtónum með láréttum náttúrulegum æðum sem endurspegla vein-cut travertín. Línuleg áferðin gefur yfirborðinu fágað og rólegt yfirbragð sem hentar jafnt í nútímalegar sem klassískar innréttingar. Flísin passar einstaklega vel með viði, kalklitum, náttúrusteini og málmum í svörtum, bronseruðum eða gylltum tónum. Hún hentar vel á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum og er einnig tilvalin fyrir samfellda hönnun innan- og utandyra.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikarTravertínútlit (Vein-cut), Matt, Smooth eða Grip yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.

Hvar hentar flísin?Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.

6mm 60x120, 120x120, 120x278 9mm 30x60, 60x60, 60x120 20mm 60x120 Hálkustuðull R9 (matt)/R11 (Grip)

Sama lína

Aðrir litir í Aventino

Marmara útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Marmara útlit