Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af fíngerðri textíláferð sem gefur flísinni mjúkt og hlýlegt yfirbragð. Hönnunin er innblásin af teppum og vefnaði en yfirborð postulínsins gerir hana mun hagnýtari í daglegri notkun. Mismunandi teikning og áferð milli einstakra flísa skapar lifandi og náttúrulegt yfirbragð þar sem flísalögnin verður ekki einsleit.

Hlýir sand- og beige-tónar Carpet Sand fara einstaklega vel með ljósum viðartegundum, kremuðum og náttúrulegum tónum, steini og öðrum jarðbundnum efnum. Hún getur einnig skapað fallega andstæðu við dökka viðartegundir, svarta málma og einfaldar nútímalegar innréttingar.

60x60 cm formið hentar vel í bæði minni og stærri rými og skapar rólegan og samfelldan flöt. Carpet Sand er einnig fáanleg í 50x100 cm og 100x100 cm stærðum, auk sexhyrndrar útfærslu og mósaíks, sem gefur fjölbreytta möguleika á að leika sér með stærðir og mynstur innan sama rýmis.

Carpet Sand hentar sérstaklega vel í stofur, borðstofur, svefnherbergi og forstofur þar sem óskað er eftir hlýlegu og notalegu yfirbragði. Hún hentar einnig vel í baðherbergi og eldhús og getur verið falleg leið til að færa mjúka textílhönnun inn í rými þar sem hefðbundin teppi henta síður. Flísin er ætluð á bæði gólf og veggi og einnig á útigólf.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel raka, bletti og mikla umferð og heldur fallegu útliti sínu án sérstakrar yfirborðsmeðhöndlunar.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Hlý sandlituð postulínsflís, textíl- og teppainnblásin hönnun, mikill breytileiki milli flísa, 60x60 cm form og Natural-áferð
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innandyra og á útigólf, meðal annars í baðherbergi, eldhús, stofur, svefnherbergi og atvinnurými
10mm 60x60, 50x100, 100x100, 25x30 (Hexagon)
Yfirborð Matt

Sama lína

Aðrir litir í Carpet

Mynstur- og skrautflísar

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Mynstur- og skrautflísar