Um vöruna
Flísin sameinar mjúkan bláan tón og mjóar lóðréttar línur kitkat-flísarinnar sem skapa fallegt flæði og sjónræna dýpt á veggjum. Létt og fágað formið gefur rýminu nútímalegt yfirbragð og hentar sérstaklega vel þar sem óskað er eftir rólegri, ferskri og persónulegri hönnun.
Flísin fellur einstaklega vel að ljósum við, eik, travertíni, kalksteini, terrazzo, steinsteypu og svörtum, burstuðum eða gylltum málmum. Hún passar einnig vel með öðrum litum úr Home Kitkat-línunni, svo sem Navy, Milk, Ash eða Forest, til að skapa fallegar andstæður og persónulegar hönnunarlausnir. Flísin hentar sérstaklega vel í eldhús, baðherbergi, sturtusvæði, spa-rými, kaffihús, veitingastaði, hótel og önnur atvinnurými þar sem óskað er eftir björtu og róandi yfirbragði.
Keramikflísar eru slitsterkar og einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel raka og daglega notkun og auðvelt er að halda yfirborðinu hreinu með hefðbundnum hreinsiefnum. Gljáandi yfirborðið heldur fallegum ljóma sínum án sérstakrar yfirborðsmeðhöndlunar.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Handmótað yfirbragð, ljósblár litur með mjúkum tónum, gljáandi yfirborð, nútímalegt kitkat-snið, tímalaus hönnun | Hvar hentar flísin? | Hentar á veggi innandyra, meðal annars í eldhús, baðherbergi, þvottahús og atvinnurými |
| 9mm | 12.5x25 |
| Yfirborð | Glans |
Sama lína
Einlitar flísar
Við notum vafrakökur frá Google Analytics til að sjá hvernig vefurinn er notaður og bæta hann. Nánar