Um vöruna
Flísin einkennist af djúpum svörtum grunni með skýrum hvítum marmaraæðum sem liðast óreglulega um yfirborðið og skapa sterkt, náttúrulegt mynstur. Samspil dökks grunns og björtu æðanna gefur flísinni kraftmikið yfirbragð og undirstrikar glæsileika sem minnir á vandaðan náttúrumarmara.
Dökkir hlutlausir tónar gera flísina einstaklega fallega með náttúrulegum við, ljósri steinsteypu, hvítum flötum, gleri og svörtum, burstuðum eða messinglituðum málmum. Hún hentar sérstaklega vel í baðherbergi, eldhús, stofur, anddyri, veggklæðningar, móttökur og önnur rými þar sem óskað er eftir fáguðu, nútímalegu og áhrifamiklu yfirbragði.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.
Tæknilegar upplýsingar
| 6mm | 60x120, 120x120, 120x278 | 9mm | 10x60, 30x60, 60x60, 60x120 | Áferðir | Smooth/Lucida/Honed/Vein-Touch |
Sama lína
Marmara útlit
Nýtt