Um vöruna
Passar á flesta 115 mm og 125 mm slípirokka, bæði með snúru og rafhlöðu. Rokkurinn er festur með snittuðum öxli og öryggisól með hraðlosun.
Mitre Mate er fyrst og fremst gerður fyrir þurrskurð en má líka nota við blautskurð, með slöngutengi og flæðistilli. Tengi fyrir ryksugu heldur vinnusvæðinu ryklausu, og hann er nettur í flutningi og fljótlegur í uppsetningu.
Tæknilegar upplýsingar
| Skurður | 45° gráðuskurður |
| Þykkt flísar | 16–20 mm |
| Slípirokkar | Flestir 115 og 125 mm, með snúru og rafhlöðu |
| Þurr- og blautskurður | Já (slöngutengi með flæðistilli) |
| Ryksugutengi | Já |
| Fylgir | Sagarblað |
| Þyngd | 3,9 kg |
| Vörunúmer RUBI | 52825 |
Verkfæri