Stile Pale

Stile Pale er hágæða postulínsflís með náttúrulegu steinútliti sem sameinar ljósa sand- og kremtóna og tímalausa hönnun. Innblásturinn kemur frá náttúrusteini þar sem mjúk litbrigði og fíngerð áferð skapa bjart og hlýlegt yfirbragð. Til viðbótar við hefðbundið yfirborð er flísin einnig fáanleg með Diagonale og Rigata áferð sem gefur veggjum og áhersluflötum aukna dýpt og karakter.

Hönnun

Flísin einkennist af mjúkum ljósum litbrigðum sem endurkasta birtu og skapa opið og rólegt yfirbragð. Náttúruleg steináferðin ásamt Diagonale og Rigata yfirborðunum gefur rýminu fíngerða áferð sem hentar jafnt í nútímalegar sem klassískar innréttingar. Flísin passar einstaklega vel með viði, náttúrusteini, steinsteypu og bæði svörtum og ljósum málmum.

Viðhald

Postulínsflísar þurfa lítið viðhald og henta vel í daglega notkun. Yfirborðið tekur ekki auðveldlega í sig raka eða óhreinindi og nægir yfirleitt að þrífa með vatni og mildu hreinsiefni.

Aðrir litir í sömu línu

Stile Beige - Stile Black - Stile French Grey - Stile Pearl - Stile White Smoke

Helstu eiginleikar Mött áferð, Diagonale og Rigata áferð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi í baðherbergi, eldhúsi, alrými og öðrum rýmum. R11 útgáfan hentar einnig vel í atvinnuhúsnæði og utandyra.
9mm 30x60, 45x90, 60x60, 60x120, 90x90, 120x120
20mm 60x60, 90x90
Hálkustuðull R10 (Naturale)/R10 A+B (Diagonale & Rigata)/R11 (Grip)

 

Additional information

Opnunartímar

Mánudag til fimmtudags frá 08:00 til 17:00
Föstudaga frá 08:00 til 16:00
Laugardaga frá 10:00 til 14:00
ViðskiptaskilmálarPersónuverndarstefna

Verið velkomin!

Við erum á Stórhöfða 21, 
110 Reykjavík, við Gullinbrú.


Flísabúðin Logo
cart
linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram