Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af hlýrri blöndu af beige og grábrúnum litbrigðum með fíngerðum kristölluðum mynstrum sem gefa yfirborðinu náttúrulegt líf og fágaða áferð. Hlýir og hlutlausir tónarnir gera flísina einstaklega fjölhæfa og auðvelda í samsetningu með viði, kalksteini, steinsteypu, marmara og málmum í bæði svörtum og gylltum tónum. Hún hentar jafnt á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum þar sem óskað er eftir hlýlegri og nútímalegri hönnun.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Steinútlit með kristölluðum blæbrigðum, Naturale, Polished (Lucidato) og Grip yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.
6mm 120x278
9mm 30x60, 60x60, 60x120, 120x120
Hálkustuðull R10 (natural)/R11 (Grip)

Sama lína

Aðrir litir í Supreme

Marmara útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Marmara útlit