Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af mjúkum beige- og jarðlitum með fíngerðri áferð sem gefur yfirborðinu rólegt og samræmt útlit. Hlýju tónarnir skapa notalegt og bjart yfirbragð og gera flísina auðvelda í samsetningu með viði, náttúrusteini, marmara og bæði svörtum og ljósum málmum. Flísin hentar einstaklega vel í baðherbergi, eldhús, stofur, skrifstofur og atvinnurými þar sem óskað er eftir nútímalegri en hlýlegri hönnun.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikarSteinsteypuútlit, Rasato (Pússuð steypuáferð), matt yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.

Hvar hentar flísin?Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.

9mm 30x60, 60x60, 60x120 Hálkustuðull R9 (Rasato)

Steypu útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Steypu útlit