Um vöruna
Flísin einkennist af ljósum hvítum og mjúkum gráum litbrigðum með fíngerðri steinsteypuáferð sem skapar rólegt og samræmt yfirborð. Ljósir tónarnir endurkasta birtu og gefa rýminu opið og rúmgott yfirbragð. Flísin passar einstaklega vel með viði, náttúrusteini, steinsteypu og bæði svörtum og ljósum málmum. Hún hentar vel í baðherbergi, eldhús, stofur, skrifstofur og atvinnurými þar sem óskað er eftir nútímalegri og minimalískri hönnun.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Steinsteypuútlit, Rasato (Pússuð steypuáferð), matt yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði. |
| 9mm | 30x60, 60x60, 60x120 |
| Hálkustuðull | R9 (Rasato) |
Steypu útlit