Casalgrande Padana
Um vöruna
Flísin einkennist af náttúrulegum kaki- og ólífutónum sem færa rýminu hlýju og karakter án þess að vera yfirgnæfandi. Fíngerð steináferðin gefur flísinni líflegt en rólegt yfirbragð sem passar einstaklega vel með viði, svörtum smáatriðum, náttúrusteini og öðrum jarðlitum.
Postulínsflísar þurfa lítið viðhald og henta vel í daglega notkun. Yfirborðið tekur ekki auðveldlega í sig raka eða óhreinindi og nægir yfirleitt að þrífa með vatni og mildu hreinsiefni.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Mött áferð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi í baðherbergi, eldhúsi, alrými og öðrum rýmum. R11 útgáfan hentar einnig vel utandyra. |
| 9mm | 30x60, 60x60, 60x120 |
| 20mm | 60x120 |
| Hálkustuðull | R10 (natural)/R11 (grip) |
Sama lína
Náttúrusteins útlit
Nýtt
Nýtt