Um vöruna

Hönnun

Flísin endurskapar hlý og mjúk litbrigði hins klassíska Rosa Portogallo-marmara með fíngerðum æðum sem renna náttúrulega yfir ljósbleikan bakgrunn. Liturinn gefur rýminu hlýju og mýkt án þess að vera áberandi og hentar jafnt nútímalegum sem klassískum innréttingum. Náttúruleg marmaraáferðin bætir dýpt og fágað yfirbragð við hverja flís.

Flísin fellur einstaklega vel að ljósum viðartegundum, travertíni, kalksteini, terrazzo, marmara, gleri og svörtum, burstuðum eða gylltum málmum. Hún er einnig tilvalin í samsetningu með öðrum litum úr Dama-línunni, svo sem Bianco Carrara eða Botticino Classico, til að skapa hlýlegar og glæsilegar heildarlausnir. Flísin hentar vel í baðherbergi, eldhús, forstofur, stofur, hótel, veitingastaði og önnur atvinnurými þar sem óskað er eftir björtu, hlýlegu og tímalausu marmaraútliti.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel raka, bletti og daglega notkun og heldur fallegu gljáandi útliti sínu án sérstakrar yfirborðsmeðhöndlunar.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Marmaraáferð, hlýr ljósbleikur grunnur, mjúkar beige- og ljósgráar æðar, tímalaus hönnun, endingargott postulín Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofum og atvinnurýmum 9mm 6x6, 6x25, 25x25 Yfirborð Matt Sérútfærslur Hægt að para saman liti og stærðir fyrir skemmtilegt mynstur

Marmara útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Marmara útlit