Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af ljósum tónum sem gefa rýmum bjart, opið og fágað yfirbragð. Fíngerð marmaraáferð og mjúk dýpt yfirborðsins skapa náttúrulega hreyfingu án þess að taka athyglina frá öðrum efnum og innréttingum. Hvíti grunnurinn gerir Trevi sérstaklega auðvelda í samsetningu og hentar jafnt í nútímalegar sem klassískar innréttingar.

Flísin passar einstaklega vel með ljósum og dökkum viði, kalklitum, náttúrusteini og málmum í svörtum, krómuðum, bronseruðum eða gylltum tónum. Hún hentar vel á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum og er sérstaklega góður kostur þar sem markmiðið er að skapa bjarta, rólega og tímalausa heild.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel raka, bletti og mikla umferð og heldur fallegu útliti sínu án sérstakrar yfirborðsmeðhöndlunar.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Marmara- og náttúrusteinsútlit, Natural eða Polished/Lappato yfirborð, kantskorin, slitsterk, frostþolin og auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu og atvinnuhúsnæði. Imperial-línan er einnig ætluð fyrir útirými eftir yfirborði og aðstæðum.
8,8mm 10x30, 30x60, 60x60, 60x120, 120x120
Yfirborð Natural Rectified / Polished (Lap) Rectified
Hálkustuðull R10 (Natural)
Sérútfærslur Esagona (28x29), Intreccio (30x30), Mosaico (30x30), Muretto (30x30), Spina Di Pesce (30,5x30,5)

Marmara útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Marmara útlit