Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af ljósum gráum grunntóni þar sem dökk og mjög ljós litbrigði skiptast á og skapa lifandi en yfirvegað yfirborð. Fínlegar æðar og náttúruleg litadýpt gefa flísinni glæsilegt marmarayfirbragð sem hentar sérstaklega vel í fágaðar, nútímalegar innréttingar en fellur jafnframt vel að klassískri hönnun.

Kaldir gráir tónarnir passa einstaklega vel með ljósum og dökkum viði, hvítum og kalklituðum yfirborðum, náttúrusteini og málmum í svörtum, krómuðum eða burstuðum tónum. Alabastrino hentar vel á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum og Imperial-línan er einnig ætluð til notkunar í útirýmum.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel raka, bletti og mikla umferð og heldur fallegu útliti sínu án sérstakrar yfirborðsmeðhöndlunar.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Marmara- og náttúrusteinsútlit, Natural eða Polished/Lappato yfirborð, kantskorin, slitsterk, frostþolin og auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu og atvinnuhúsnæði. Imperial-línan er einnig ætluð fyrir útirými eftir yfirborði og aðstæðum.
8,8mm 10x30, 30x60, 60x60, 60x120, 120x120
Yfirborð Natural Rectified / Polished (Lap) Rectified
Hálkustuðull R10 (Natural)
Sérútfærslur Esagona (28x29), Intreccio (30x30), Mosaico (30x30), Muretto (30x30), Spina Di Pesce (30,5x30,5)

Sama lína

Aðrir litir í Imperial

Marmara útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Marmara útlit