Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af mjúkum hvítum og ljósgráum litbrigðum með náttúrulegum blæbrigðum sem gefa yfirborðinu líf og dýpt án þess að vera áberandi. Hlutlaus liturinn gerir flísina einstaklega fjölhæfa og auðvelda í samsetningu með viði, marmara, steinsteypu og málmum í bæði svörtum og ljósum tónum. Hún hentar jafnt á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum og skapar samfellda hönnun innan- og utandyra.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Náttúrulegt steinútlit, Naturale og Grip yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhald.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.
6mm 60x120, 120x120, 120x278
9mm 30x60, 60x60, 60x120, 120x120
12mm 160x320
20mm 60x60, 60x120
Hálkustuðull R10 (natural)/R11 (Grip)

Sama lína

Aðrir litir í Gré

Terrazzo útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Terrazzo útlit