Casalgrande Padana
Um vöruna
Flísin einkennist af djúpum dökkgráum og svörtum litbrigðum með náttúrulegum blæbrigðum sem gefa yfirborðinu dýpt og fágaðan karakter. Dökkur og kraftmikill liturinn hentar sérstaklega vel í nútímalegum rýmum þar sem óskað er eftir sterkri hönnun og glæsilegu yfirbragði.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Náttúrulegt steinútlit, Naturale og Grip yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhald. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði. |
| 9mm | 30x60, 60x60, 60x120, 120x120 |
| Hálkustuðull | R10 (natural)/R11 (Grip) |
Sama lína
Terrazzo útlit