Um vöruna

Hönnun

Flísin sameinar djúpa vínrauða og fjólubláa litatóna með gljáandi yfirborði sem fangar birtuna og skapar fallegt samspil ljóss og skugga. Klassíska brick-sniðið (6 × 25 cm) býður upp á fjölbreytta möguleika í lögn, svo sem beina lögn, hálfskipta lögn eða fiskibeinamynstur, sem hentar jafnt nútímalegum sem klassískum innréttingum.

Flísin fellur einstaklega vel að náttúrulegum við, travertíni, kalksteini, terrazzo, steinsteypu og svörtum, burstuðum eða gylltum málmum. Hún passar einnig vel með öðrum litum úr Home Brick-línunni, svo sem Milk, Ash, Forest eða Navy, til að skapa fallegar andstæður og persónulegar hönnunarlausnir. Flísin hentar sérstaklega vel í eldhús, baðherbergi, kaffihús, veitingastaði, hótel og önnur atvinnurými þar sem óskað er eftir hlýlegu og áberandi yfirbragði.

Viðhald

Keramikflísar eru slitsterkar og einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel raka og daglega notkun og auðvelt er að halda yfirborðinu hreinu með hefðbundnum hreinsiefnum. Gljáandi yfirborðið heldur fallegum ljóma sínum án sérstakrar yfirborðsmeðhöndlunar.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Handmótað yfirbragð, djúpur vínrauður og fjólublár tónn, gljáandi yfirborð, klassískt brick-snið, tímalaus hönnun
Hvar hentar flísin? Hentar á veggi innandyra, meðal annars í eldhús, baðherbergi, þvottahús og atvinnurými
9mm 6x25
Yfirborð Glans

Einlitar flísar

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Einlitar flísar