Casalgrande Padana
Um vöruna
Flísin einkennist af djúpum svörtum lit með fíngerðri ákveðuáferð sem gefur yfirborðinu náttúrulega dýpt og líf. Hlutlaus en kraftmikill liturinn passar einstaklega vel með viði, steinsteypu, marmara, gleri og málmum í svörtum, bronseruðum eða gylltum tónum. Flísin hentar jafnt á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum, anddyrum og atvinnurýmum þar sem óskað er eftir glæsilegri og tímalausri hönnun.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Matt Naturale (R10), slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði. |
| 9mm | 30x30, 30x60, 60x60 |
| Hálkustuðull | R10 (natural) |
Náttúrusteins útlit
Nýtt
Nýtt