Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af djúpum dökkgráum og svörtum litbrigðum með náttúrulegum blæbrigðum sem gefa yfirborðinu dýpt og fágað útlit. Flísin hentar sérstaklega vel í nútímaleg rými þar sem óskað er eftir sterkri og glæsilegri hönnun. Hún passar einstaklega vel með ljósum við, marmara, steinsteypu, gleri og málmum eins og svörtu stáli, bronsi og kopar. Lithos Nero er tilvalin á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum og hentar einnig fyrir útisvæði þar sem óskað er eftir samfelldu útliti milli innan- og utanhúss.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Náttúrulegt steinútlit, Naturale (R10), Satin og Grip yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.
6mm 120x278
9mm 30x60, 60x60, 60x120, 90x90, 120x120
Hálkustuðull R10 (naturale)/R11 (Grip)

Náttúrusteins útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Náttúrusteins útlit
Casalgrande Padana Stile Pale Nýtt
Casalgrande Padana

Stile Pale

Verð á fyrirspurn