Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af dökkbláum tónum sem gefa yfirborðinu mikla dýpt og sterkan karakter. Veðraða áferðin og handverkslega yfirbragðið skapa fallegt fusion á milli klassísks múrsteins og nútímalegrar hönnunar. Litabreytileikinn er V3, þannig að sjáanlegur munur er á lit og áferð milli einstakra flísa og heildin verður því lifandi fremur en einsleit.

Aflanga formið býður upp á fjölbreytta möguleika í lögn og hentar vel í hefðbundið múrsteinsmynstur, lóðrétta lögn eða fiskibeinsmynstur. Dökkblái liturinn passar sérstaklega vel með ljósum viði, steypu, kalklitum og náttúrusteini og getur skapað fallegar andstæður við ljósar innréttingar. Hann fer einnig vel með málmum í svörtum, krómuðum, bronseruðum eða burstuðum tónum.

Vegna handverkslegs útlits Kist eru brúnir flísanna óreglulegar og vísvitandi er ákveðinn stærðarmunur milli þeirra. Framleiðandinn mælir því sérstaklega með 5 mm fúgu við lögn. Þetta er mikilvægur hluti af útliti línunnar og hjálpar til við að undirstrika karakter hverrar flísar.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel raka, bletti og mikla umferð og heldur fallegu útliti sínu án sérstakrar yfirborðsmeðhöndlunar.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Múrsteinsútlit, vintage og industrial áferð, Matte og Lux yfirborð, óreglulegar brúnir, mikill karakter, frostþolin og auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innan- og utandyra, meðal annars í eldhús, baðherbergi, stofu, forstofu, atvinnurými og útisvæði.
9,5mm 4,8x45
Yfirborð Matte / Lux
Hálkustuðull R10 (Natural)

Mynstur- og skrautflísar

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Mynstur- og skrautflísar