Um vöruna
Flísin einkennist af mjúkum jade- og grágrænum tónum með fjölbreyttri patínu og slitinni áferð sem minnir á aldraðan, handunnin múrstein. Óreglulegar brúnir og vísvitandi stærðarmunur milli flísa eru mikilvægur hluti af hönnun línunnar og undirstrika náttúrulegt og ófullkomið yfirbragð hennar. Kist er með V3 litabreytileika, þannig að sjáanlegur munur er á lit og mynstri einstakra flísa.
Aflanga formið býður upp á fjölbreytta möguleika í lögn og hentar einstaklega vel í hefðbundið múrsteinsmynstur, lóðrétta lögn eða fiskibeinsmynstur. Jade-litavalið passar fallega með ljósum og dökkum viði, kalklitum, steypu og náttúrusteini og fer vel með málmum í svörtum, bronseruðum eða burstuðum tónum. Grænblái tónninn getur bæði verið rólegur bakgrunnur og áhugaverður áherslulitur í rýminu.
Vegna handverkslegs útlits Kist eru brúnir flísanna óreglulegar og vísvitandi er ákveðinn stærðarmunur milli þeirra. Framleiðandinn mælir því sérstaklega með 5 mm fúgu við lögn. Þetta er mikilvægur hluti af útliti línunnar og hjálpar til við að undirstrika karakter hverrar flísar.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel raka, bletti og mikla umferð og heldur fallegu útliti sínu án sérstakrar yfirborðsmeðhöndlunar.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Múrsteinsútlit, vintage og industrial áferð, Matte og Lux yfirborð, óreglulegar brúnir, mikill karakter, frostþolin og auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi innan- og utandyra, meðal annars í eldhús, baðherbergi, stofu, forstofu, atvinnurými og útisvæði. |
| 9,5mm | 4,8x45 |
| Yfirborð | Matte / Lux |
| Hálkustuðull | R10 (Natural) |
Sama lína
Mynstur- og skrautflísar