Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af ljósum gráum og mildum steintónum sem gefa yfirborðinu rólegt yfirbragð. Veðruð áferð línunnar skapar dýpt og náttúrulega hreyfingu, en litabreytileikinn er V3, sem þýðir að sjáanlegur munur er á lit og áferð milli einstakra flísa. Þessi breytileiki hjálpar til við að skapa lifandi og óreglulega heild sem styrkir handverkslegt múrsteinsútlitið.

Aflanga formið býður upp á fjölbreytta möguleika í lögn og hentar vel í hefðbundið múrsteinsmynstur, lóðrétta lögn eða fiskibeinsmynstur. Ljósgrái liturinn passar einstaklega vel með viði, steypu, kalklitum og náttúrusteini og fer fallega með málmum í svörtum, krómuðum, bronseruðum eða burstuðum tónum. Hann er góður kostur fyrir rými þar sem óskað er eftir hlutlausum grunni með meiri karakter en hefðbundin slétt grá flís býður upp á.

Vegna handverkslegs útlits Kist eru brúnir flísanna óreglulegar og vísvitandi er ákveðinn stærðarmunur milli þeirra. Framleiðandinn mælir því sérstaklega með 5 mm fúgu við lögn. Þetta er mikilvægur hluti af útliti línunnar og hjálpar til við að undirstrika karakter hverrar flísar.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel raka, bletti og mikla umferð og heldur fallegu útliti sínu án sérstakrar yfirborðsmeðhöndlunar.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Múrsteinsútlit, vintage og industrial áferð, Matte og Lux yfirborð, óreglulegar brúnir, mikill karakter, frostþolin og auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innan- og utandyra, meðal annars í eldhús, baðherbergi, stofu, forstofu, atvinnurými og útisvæði.
9,5mm 4,8x45
Yfirborð Matte / Lux
Hálkustuðull R10 (Natural)

Mynstur- og skrautflísar

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Mynstur- og skrautflísar