Um vöruna
Flísin einkennist af hlýjum jarðlitum og náttúrulegum steinæðum sem gefa yfirborðinu dýpt og karakter. Mjúk litbrigðin skapa hlýlegt og rólegt yfirbragð sem passar einstaklega vel með viði, steinsteypu, náttúrusteini og öðrum náttúrulegum efnum. Flísin hentar vel á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum, auk þess sem grip-yfirborðið gerir hana hentuga á veröndum, svölum og öðrum útisvæðum.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Amazzonia Dragon Beige þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Náttúrulegt steinútlit, matt yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði. |
| 9mm | 30x30, 30x60, 45x45, 45x90, 60x60 |
| 20mm | 45x90 |
| Hálkustuðull | R10 (Natural A+B)/R12 (Grip A+B+C) |
Sama lína
Náttúrusteins útlit
Nýtt
Nýtt