Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af náttúrulegum gráum litbrigðum og steináferð sem gefur yfirborðinu dýpt og líf. Hlutlausir tónarnir gera flísina einstaklega fjölhæfa og auðvelda í samsetningu með viði, steinsteypu, náttúrusteini og bæði svörtum og ljósum málmum. Hún hentar vel á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum, auk þess sem grip-yfirborðið gerir hana hentuga á veröndum, svölum og öðrum útisvæðum.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Amazzonia Dragon Grey þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Náttúrulegt steinútlit, matt yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.
9mm 30x30, 30x60, 45x45, 45x90, 60x60
20mm 45x90
Hálkustuðull R10 (Natural A+B)/R12 (Grip A+B+C)

Náttúrusteins útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Náttúrusteins útlit
Casalgrande Padana Stile Pale Nýtt
Casalgrande Padana

Stile Pale

Verð á fyrirspurn