Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af djúpum grænum og jarðlituðum tónum með náttúrulegri steináferð sem skapar dýpt og líf í yfirborðinu. Náttúruleg litasamsetning gerir flísina að frábærum kosti fyrir rými þar sem óskað er eftir hlýju og fágaðri hönnun. Hún passar einstaklega vel með viði, steinsteypu, náttúrusteini og svörtum eða bronseruðum málmum. Flísin hentar vel á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum, auk þess sem grip-yfirborðið gerir hana hentuga á veröndum, svölum og öðrum útisvæðum.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Amazzonia Dragon Green þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Náttúrulegt steinútlit, matt yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.
9mm 30x30, 30x60, 45x45, 45x90, 60x60
Hálkustuðull R10 (Natural A+B)/R12 (Grip A+B+C)

Náttúrusteins útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Náttúrusteins útlit
Casalgrande Padana Stile Pale Nýtt
Casalgrande Padana

Stile Pale

Verð á fyrirspurn