Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af dökkum antrasítlit með náttúrulegri steináferð sem gefur yfirborðinu dýpt og líf. Flísin hentar einstaklega vel í baðherbergi, eldhús, stofur og atvinnurými þar sem óskað er eftir nútímalegu og náttúrulegu yfirbragði. Hún passar vel með viði, steinsteypu, svörtum málmum og öðrum náttúrulegum efnum og er fáanleg með Naturale-, Silk- og Grip-yfirborði eftir stærðum.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Náttúrulegt steinútlit, matt (Naturale), Silk eða Grip yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.
9mm 30x60, 60x60, 60x120, 120x120
20mm 60x60, 60x120
Hálkustuðull R10 (natural)/R11 (Grip A+B+C)

Náttúrusteins útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Náttúrusteins útlit
Casalgrande Padana Stile Pale Nýtt
Casalgrande Padana

Stile Pale

Verð á fyrirspurn