Um vöruna
Flísin einkennist af ljósum hvítum og mjúkum gráum litbrigðum með fíngerðri steináferð sem gefur yfirborðinu náttúrulega dýpt. Ljósir tónarnir gera flísina einstaklega fjölhæfa og auðvelda í samsetningu með viði, náttúrusteini, steinsteypu og bæði svörtum og ljósum málmum. Hún hentar vel á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum og er einnig frábær kostur fyrir útisvæði þar sem óskað er eftir samræmdu útliti.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.
Helstu eiginleikarNáttúrulegt steinútlit, matt (Naturale), Silk eða Grip yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.Hvar hentar flísin?Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.9mm30x60, 60x60, 60x120, 120x12020mm60x60, 60x120HálkustuðullR10 (natural)/R11 (Grip A+B+C)
Tæknilegar upplýsingar
Sama lína
Náttúrusteins útlit
Nýtt
Nýtt