Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af hlýjum beige- og sandtónum með fíngerðum steinæðum sem gefa yfirborðinu dýpt og náttúrulegt yfirbragð. Hlutlausir litirnir gera flísina einstaklega fjölhæfa og auðvelda í samsetningu með viði, náttúrusteini, steinsteypu og bæði svörtum og ljósum málmum. Hún hentar vel á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum og atvinnurýmum og er einnig frábær kostur fyrir útisvæði þar sem óskað er eftir samræmdu útliti.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikarNáttúrulegt steinútlit, matt (Naturale), Silk eða Grip yfirborð, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.

Hvar hentar flísin?Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.

9mm 30x60, 60x60, 60x120, 120x120 20mm 60x60, 60x120 Hálkustuðull R10 (natural)/R11 (Grip A+B+C)

Náttúrusteins útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Náttúrusteins útlit
Casalgrande Padana Stile Pale Nýtt
Casalgrande Padana

Stile Pale

Verð á fyrirspurn