Um vöruna
Flísin einkennist af dökkum svörtum lit með dreifðum steinakornum sem gefa yfirborðinu dýpt og lifandi áferð. Þar sem mynstrið nær í gegnum efnið sjálft (full body porcelain) heldur flísin náttúrulegu útliti sínu jafnvel við mikla notkun. Hún passar einstaklega vel með steinsteypu, viði, gleri og málmum og hentar á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum, verslunum og öðrum rýmum þar sem gerðar eru miklar kröfur um slitþol.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Gegnheill postulínsflís, náttúrulegt storkubergsútlit, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði. |
| 9mm | 30x60, 60x60, 60x120 |
| Hálkustuðull | R10 (matt)/R11 (Grip) |
Sama lína
Terrazzo útlit