Um vöruna
Flísin einkennist af ljósum perlugráum litbrigðum með dreifðum steinakornum sem gefa yfirborðinu náttúrulegt og fágað yfirbragð. Þar sem mynstrið nær í gegnum efnið sjálft (full body porcelain) heldur flísin útliti sínu jafnvel við mikla notkun. Hún passar einstaklega vel með viði, steinsteypu, náttúrusteini, gleri og málmum og hentar á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum, verslunum og öðrum rýmum þar sem gerðar eru miklar kröfur um slitþol.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.
Tæknilegar upplýsingar
| 9mm | 30x60, 60x60, 60x120 | Hálkustuðull | R10 (matt)/R11 (Grip) |
Sama lína
Terrazzo útlit