Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af hlýjum sandlitum með dreifðum steinakornum sem gefa yfirborðinu náttúrulega áferð og líf. Þar sem mynstrið nær í gegnum efnið sjálft (full body porcelain) heldur flísin útliti sínu jafnvel við mikla notkun. Hlýju tónarnir skapa notalegt og tímalaust yfirbragð og henta einstaklega vel með viði, kalksteini, steinsteypu, gleri og bæði svörtum og ljósum málmum. Flísin hentar á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum, verslunum og öðrum rýmum þar sem gerðar eru miklar kröfur um slitþol.

Viðhald

Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikarGegnheill postulínsflís, náttúrulegt storkubergsútlit, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.

Hvar hentar flísin?Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði.

9mm 30x60, 60x60, 60x120 Hálkustuðull R10 (matt)/R11 (Grip)

Terrazzo útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Terrazzo útlit