Um vöruna
Flísin einkennist af björtum hvítum og mjúkum ljósgráum litbrigðum með dreifðum steinakornum sem gefa yfirborðinu náttúrulega dýpt og líf. Þar sem mynstrið nær í gegnum efnið sjálft (full body porcelain) heldur flísin útliti sínu jafnvel við mikla notkun. Ljósir tónarnir skapa opið og rúmgott yfirbragð og passa einstaklega vel með viði, steinsteypu, náttúrusteini, gleri og bæði svörtum og ljósum málmum. Flísin hentar á gólf og veggi í baðherbergjum, eldhúsum, stofum, verslunum og öðrum rýmum þar sem gerðar eru miklar kröfur um slitþol.
Postulínsflísar eru einstaklega slitsterkar, taka ekki í sig raka og eru einfaldar í daglegri umhirðu. Flísin þolir vel bletti, rispur, frost og mikla umferð, sem gerir hana að áreiðanlegum kosti fyrir bæði heimili og atvinnuhúsnæði, innan sem utan dyra.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Gegnheill postulínsflís, náttúrulegt storkubergsútlit, slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi innandyra og utandyra, meðal annars í baðherbergi, eldhúsi, stofu, verönd og atvinnuhúsnæði. |
| 9mm | 30x60, 60x60, 60x120 |
| Hálkustuðull | R10 (matt)/R11 (Grip) |
Sama lína
Terrazzo útlit