Um vöruna
Flísin einkennist af djúpum gráum grunni með náttúrulegum marmaraæðum sem gefa hverri flís einstakt yfirbragð. Flísin skapar glæsilega og fágaða heild á gólfum og veggjum og hentar einstaklega vel í baðherbergi, eldhús, stofur og atvinnurými. Hún passar vel með viði, svörtum eða burstuðum málmum og öðrum náttúrulegum efnum þar sem óskað er eftir fáguðu og tímalausu útliti.
Postulínsflísar þurfa lítið viðhald og henta vel í daglega notkun. Yfirborðið tekur ekki auðveldlega í sig raka eða óhreinindi og nægir yfirleitt að þrífa með vatni og mildu hreinsiefni. Ólíkt náttúrulegum marmara þurfa flísarnar úr Marmoker línunni ekki reglulega yfirborðsmeðhöndlun til að viðhalda fallegu útliti sínu.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Marmaraútlit, matt og fágað yfirborð (Lucida/Naturale), slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi í baðherbergi, eldhúsi, alrými og öðrum rýmum. |
| 6mm | 60x120, 120x120 |
| 9mm | 30x60, 60x60, 60x120 |
| Hálkustuðull | R9 (Honed)/Lucida |
Marmara útlit
Nýtt