Um vöruna
Flísin einkennist af björtum hvítum grunni með náttúrulegum æðum í hlýjum gylltum og gráum tónum sem gefa yfirborðinu einstaka dýpt og karakter. Flísin skapar glæsilega og hlýlega stemningu og hentar sérstaklega vel í baðherbergi, eldhús, stofur og vönduð atvinnurými. Hún passar einstaklega vel með viði, bronstónum, gylltum málmum og ljósum náttúrulegum efnum þar sem óskað er eftir fáguðu og tímalausu yfirbragði.
Postulínsflísar þurfa lítið viðhald og henta vel í daglega notkun. Yfirborðið tekur ekki auðveldlega í sig raka eða óhreinindi og nægir yfirleitt að þrífa með vatni og mildu hreinsiefni. Ólíkt náttúrulegum marmara þurfa flísarnar úr Marmoker línunni ekki reglulega yfirborðsmeðhöndlun til að viðhalda fallegu útliti sínu.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Marmaraútlit, matt og fágað yfirborð (Lucida/Naturale), slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi í baðherbergi, eldhúsi, alrými og öðrum rýmum. |
| 6mm | 60x120, 120x120, 120x278, 160x320 |
| 9mm | 30x60, 60x60, 60x120, 120x120 |
| 10mm | 45x90, 90x90, 90x180 |
| 12mm | 160x320 |
| Hálkustuðull | R9 (Honed)/R10 (Honed A+B)/Lucida |
Marmara útlit
Nýtt