Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af björtum hvítum grunni með mjúkum gráum marmaraæðum sem skapa fágaða og náttúrulega heild. Flísin endurkastar birtu og gefur rýminu opið og rúmgott yfirbragð. Hún passar einstaklega vel með viði, náttúrusteini, svörtum eða burstuðum málmum og hentar bæði í klassískar og nútímalegar innréttingar. Carrara er tilvalin í baðherbergi, eldhús, stofur og atvinnurými þar sem óskað er eftir björtu og glæsilegu útliti.

Viðhald

Postulínsflísar þurfa lítið viðhald og henta vel í daglega notkun. Yfirborðið tekur ekki auðveldlega í sig raka eða óhreinindi og nægir yfirleitt að þrífa með vatni og mildu hreinsiefni. Ólíkt náttúrulegum marmara þurfa flísarnar úr Marmoker línunni ekki reglulega yfirborðsmeðhöndlun til að viðhalda fallegu útliti sínu.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Marmaraútlit, matt og fágað yfirborð (Lucida/Naturale), slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi í baðherbergi, eldhúsi, alrými og öðrum rýmum.
6mm 60x120, 120x120, 120x278
9mm 30x60, 60x60, 60x120, 120x120
10mm 45x90, 90x90, 90x180
12mm 160x320
Hálkustuðull R9 (Honed)/Lucida

Marmara útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Marmara útlit