Um vöruna
Flísin einkennist af dökkum, djúpum tónum með mjúkum hvítum og gráum marmaraæðum sem gefa yfirborðinu sterka dýpt og einstakan karakter. Hönnunin skapar glæsilega andstæðu í rýminu og hentar sérstaklega vel sem áhersluflötur, á baðherbergjum, í eldhúsum, stofum og vönduðum atvinnurýmum. Flísin passar einstaklega vel með ljósum steinum, viði, svörtum málmum, bronsi og öðrum vönduðum efnum.
Postulínsflísar þurfa lítið viðhald og henta vel í daglega notkun. Yfirborðið tekur ekki auðveldlega í sig raka eða óhreinindi og nægir yfirleitt að þrífa með vatni og mildu hreinsiefni. Ólíkt náttúrulegum marmara þurfa flísarnar úr Marmoker línunni ekki reglulega yfirborðsmeðhöndlun til að viðhalda fallegu útliti sínu.
Tæknilegar upplýsingar
| Helstu eiginleikar | Marmaraútlit, matt og fágað yfirborð (Lucida/Naturale), slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi. |
| Hvar hentar flísin? | Hentar á gólf og veggi í baðherbergi, eldhúsi, alrými og öðrum rýmum. |
| 6mm | 60x120, 120x120, 120x278 |
| 9mm | 30x60, 60x60, 60x120 |
| 10mm | 45x90, 90x90, 90x180 |
| 12mm | 160x320 |
| Hálkustuðull | R9 (Honed)/Lucida |
Marmara útlit
Nýtt