Um vöruna

Hönnun

Flísin einkennist af djúpum svörtum og kolgráum tónum með náttúrulegum marmaraæðum sem skapa fágaða og dramatíska heild. Flísin hentar einstaklega vel sem áhersluflötur, á baðherbergjum, eldhúsum, stofum og í atvinnurýmum þar sem óskað er eftir sterkri og glæsilegri hönnun. Hún passar vel með viði, steini, brons- og gylltum málmum ásamt ljósum efnum sem skapa fallega andstæðu.

Viðhald

Postulínsflísar þurfa lítið viðhald og henta vel í daglega notkun. Yfirborðið tekur ekki auðveldlega í sig raka eða óhreinindi og nægir yfirleitt að þrífa með vatni og mildu hreinsiefni. Ólíkt náttúrulegum marmara þurfa flísarnar úr Marmoker línunni ekki reglulega yfirborðsmeðhöndlun til að viðhalda fallegu útliti sínu.

Tæknilegar upplýsingar

Helstu eiginleikar Marmaraútlit, matt og fágað yfirborð (Lucida/Naturale), slitsterk, frostþolin, auðveld í viðhaldi.
Hvar hentar flísin? Hentar á gólf og veggi í baðherbergi, eldhúsi, alrými og öðrum rýmum.
6mm 60x120, 120x120, 120x278
9mm 30x60, 60x60, 60x120
10mm 45x90, 90x90, 90x180
12mm 160x320
Hálkustuðull R9 (Honed)/Lucida

Marmara útlit

Þér gæti einnig líkað

Sjá allt í Marmara útlit